Páskarnir
Við Valur brunuðum norður strax eftir vinnu á miðvikudaginn. Swift eyddi svo til engu á leiðinni eða 4.7 á hundraði svo ég var sáttur við hann fyrri hluta páskanna.
Fimmtudagurinn fór í að slappa af á Hofsósi með smá actionary og bjór og á föstudagsmorgninum skelltum við Binni, Hafdís og Arnar okkur síðan upp í fjall á Siglufirði. Ég hef einu sinni áður staðið á bretti svo það var ekki við miklum hæfileikum að búast. Mér gekk ansi illa að koma mér eitthvað upp brekkuna með skíðalyftunni, að ég tali nú ekki svo um að renna mér. Skemmti mér nú samt alveg bærilega – spurning að gera nokkrar tilraunir næst á litlum hólum og hæðum. Láta fjöllin eiga sig í bili.

Föstudagskvöldið var kíkt út í Hraun þar sem pabbi og Bylgja héldu heljarinnar spurningakeppni. Það var Útsvars stíll á þessu, bjölluspurningar, leikþættir og þrískiptar vísbendingaspurningar. Það þarf varla að taka það fram – ég var í sigurliðinu.
Laugardaginn fórum við Bylgja svo góðan rúnt um nágreni Hofsóss og tókum helling af myndum. Undir lokin tók Swift uppá því að bila. Varð grútmáttlaus og check engine ljós logaði. Þetta reyndist vera skynjari svo bíllinn eyddi töluvert meira á leiðinni suður, eða heilum 7 á hundraði.
Suzuki umboðið má svo eiga það að á þriðjudaginn, eftir að ég var kominn suður, hringdi ég í þá og sögðu þeir mér að mæta með bílinn eftir hádegið og láta lesa af honum. Þar beið ég í 30 mín. og fékk bílinn aftur í hendurnar, í fínu lagi og reikningurinn sendur á suzuki. Flott þjónusta.
Sunnudagurinn fyrir norðan fór síðan líka í myndatökum. Príluðum á stað upp í fjall og fórum að mynda hálf vatnslausan foss og nágrenni hans á Höfðaströndinni. Bylgja fórnaði sér aðeins fyrir áhugamálið og endaði í einum læknum. Ansi hressandi svona í frostinu
Annars er ég búinn að vera að föndra við myndirnar og velja eitthvað nothæft úr á netið. Gengur ágætlega, gæti orðið eitthvað úr því í dag.







