Snæfellsjökull
Netheimur skrapp uppá Snæfellsjökul núna á laugardaginn. Þrír kappar frá SOPHOS voru í heimsókn hjá okkur í vikunni með fyrirlestra. Þetta voru hressir drengir sem voru alveg ólmir í að skoða landið og brunuðum við vestur á Snæfellsnes þar sem við fengum að bruna uppá jökulinn á einhverju sem kallast áttu snjósleðar. Þeir voru nú í bæði misjöfnu ástandi þegar lagt var af stað og ekki bötnuðu þeir í höndunum á okkur. Bjaddni, reyndasti maðurinn á svæðinu, var síðan mest brútal ferðalangurinn. Hamraði í snjóskafla þannig að hann endaði með hausinn gegnum glerið á sleðanum. Sötraður var svo bjór þegar komið var niður og á heimleiðinni. Einstaklega hress ferð og tók bæði eitthvað af myndum (sem ég skellti á flickr) og líka eitthvað myndböndum sem ég kanski hendi á netið við tækifæri.
Um kvöldið hópaðist svo fólk í heimsókn og var tekið í gítar og sungið frameftir. Var líka eitthvað með myndavélina á lofti þar, svo það enn meira væntanlegt. Ég endaði svo með einhverjum hóp í bænum en sú bæjarferð endaði á að ég var kýldur, já kýldur – ekki sleginn, af einni pínulítilli stelpu. Kom smá kúla og allt… en meira af þeirri snilld með myndunum frá kvöldinu






