Move your ass!

Óflokkað 29 February 2008 | 0 Comments

Ég las einhverntímann í einhverjum póstinum á zenhabits.net að það væri gott að opinbera áætlanir sínar um aukna hreyfingu. Það skapaði auka pressu á mann að standa við það sem maður ætlaði sér ef maður væri búinn að blogga um það eða segja fjölskyldu og vinum frá því. Þannig ég ætla að prófa þetta. Nú verður tekið aftur á því! Búinn að vera full latur síðustu mánuði – eins og maður var nú kominn á skrið í þessu. Er þetta ekki annars týpískt – 13 dagar eftir af árskortinu mínu og ég fer þá að ætla mér að byrja af krafti?

Er síðan ekki ósköp eðlilegt að ég siti hérna uppí vinnu, drekki ískaldan bjór í lok dags og reifi um það hvað ég ætla að fara að vera heilsusamlegur?

Ætlar annars einhver á Skagfirðingakvöld á Players á morgun?

Leave a Reply