Jón Rambó
Fór á Rambo um helgina. Bjaddni var búinn að lýsa aðdáun sinni á henni og hversu hrottaleg myndin væri stanslaust í viku og varð ég samt ekki fyrir neinum vonbrigðum. Myndin er algjör splatter og örugglega ekki fyrir hvern sem er að sitja hana. Hún er síðan algjör klisja á köflum, Stallone aldrei verið einhver æðislegur leikari og gerir það þessa mynd bara enn betri fyrir vikið þar sem maður hlær hressilega yfir hallærislegum tilraunum kappans til að vera mjúkur og mannlegur eftir að hafa rifið menn í sig hægri vinstri. Algjört hormónaflóð þessu mynd, svo ég kvóti Bjaddna; “Maður labbaði út í lokin með stærri pung”.






