Enn meira af myndum
flickr tólið er á fullu að dúndra inn myndum núna úr partýinu, sjálfsagt helst spennandi myndir fyrir þá sem voru þarna. Allavega var þetta klassískt gítarpartý, eitt af þessum þar sem Kiddi mætir einsog stórstjarna og tekur lagið áður en hann er sóttur af einkabílstjóra og brunar í burtu
Kvöldið endaði síðan á að við kíktum nokkur í bæinn. Glaumbar nánartiltekið enda lítið eftir af nóttinni.
Bærinn endaði já svo á því að ég stóð við barinn á Glaumbar að ræða við Gulla, fyrrverandi vinnufélaga minn, sem tók uppá því að slá ansi hressilega í rassinn á lágvaxinni stelpu sem labbaði þarna framhjá okkur. Vinkonan, sem mér sýndist nú vera óhóflega hress á því, rauk að okkur ásamt einhverjum vinum hennar og byrjuðu þau öll að öskra til okkar og einhvers þriðja gaurs sem stóð þarna við barinn, alveg steinhissa á hverju hann væri lentur í, og heimtaði litla skottið að fá að vita hver hefði slegið í rassinn á sér. Ég í góðmennsku minni vildi nú ekki vera að láta Gulla enda í fanginu á þessu liði svo ég þagði bara og ætlaði að snúa mér að bjórglasinu aftur þegar sú litla stökk á milli kappann og gaf mér þetta fína hnefahögg á aðra augabrúnina
Ekki ennþá farinn að skarta glóðurauga enda var þetta nú ekki stór hnefi. En óvæntur var hann






