Þorrablót og blíða
Ferjaði cruiser norður á föstudaginn sem Elvar var að kaupa sér. Fljótlega var það orðið að cruiser og kerru í eftirdragi. Snjókomuna og frostið vantaði ekki á leiðinni svo sumardekk undir bæði bíl og kerru gerðu þetta ansi hægfara ferð. Auðvitað þó þess virði enda blótin alltaf meiriháttar.
Mætti annars norður með sett af glænýrri Macbook Pro ferðavél og Canon 400D myndavél sem Hjörvar tók uppá að gefa Bylgju systur. Þetta er náttúrulega orðið agalegt þegar hún er orðin jafn vígbúin og maður sjálfur. Nú er betra að maður fari að standa sig í að taka myndir.
Annars renndum við okkur af stað suður um kaffileytið á sunnudeginum. Áttum að taka Bjössa frænda með frá krók, stoppuðum allavega fyrir utan heima hjá honum og sáum hurðina opnast á bílnum. Bjössa sáum við þó aldrei, heyrðum þó í auka þunnum manni í bílnum alla leiðina suður.
Viddi var ekki þunnur. Ég þarf ekkert að útskýra undrun mína á því. Það er einfaldlega ónáttúrulegt. Þetta útskýrði sig þó allt í vikunni, hann er búinn að liggja heima í rúminu með felnsu bæði í dag og í gær.






