Óflokkað
29 February 2008 | 0 Comments
Ég las einhverntímann í einhverjum póstinum á zenhabits.net að það væri gott að opinbera áætlanir sínar um aukna hreyfingu. Það skapaði auka pressu á mann að standa við það sem maður ætlaði sér ef maður væri búinn að blogga um það eða segja fjölskyldu og vinum frá því. Þannig ég ætla að prófa þetta. Nú [...]
Óflokkað
28 February 2008 | 0 Comments
Hvernig á maður að taka því þegar mamma manns, sem vinnur í banka og man kennitölur og reikningsnúmer heils sveitarfélags, man ekki símanúmerið manns?
Óflokkað
20 February 2008 | 0 Comments
Búinn að bíta það loksins í mig að drattast í hjólaprófið. Henti inn fyrirspurn á kennara vegna prófsins í gær og fann Binni síðan hjól sem ég er virkilega að spá í að slá til og kaupa mér.
Rakst svo á þessar myndir á digg áðan. (EKKI fyrir viðkvæma)
Óflokkað
18 February 2008 | 0 Comments
Fór á Rambo um helgina. Bjaddni var búinn að lýsa aðdáun sinni á henni og hversu hrottaleg myndin væri stanslaust í viku og varð ég samt ekki fyrir neinum vonbrigðum. Myndin er algjör splatter og örugglega ekki fyrir hvern sem er að sitja hana. Hún er síðan algjör klisja á köflum, Stallone aldrei verið einhver [...]
Óflokkað
14 February 2008 | 0 Comments
Við að renna yfir netkonfekt.is rakst ég á snilldar færslu á gummih.com
Ásgeir fullur.is póstaði svo þessu hressandi myndbandi.
Óflokkað
13 February 2008 | 0 Comments
flickr tólið er á fullu að dúndra inn myndum núna úr partýinu, sjálfsagt helst spennandi myndir fyrir þá sem voru þarna. Allavega var þetta klassískt gítarpartý, eitt af þessum þar sem Kiddi mætir einsog stórstjarna og tekur lagið áður en hann er sóttur af einkabílstjóra og brunar í burtu Kvöldið endaði síðan á [...]
Óflokkað
12 February 2008 | 0 Comments
Netheimur skrapp uppá Snæfellsjökul núna á laugardaginn. Þrír kappar frá SOPHOS voru í heimsókn hjá okkur í vikunni með fyrirlestra. Þetta voru hressir drengir sem voru alveg ólmir í að skoða landið og brunuðum við vestur á Snæfellsnes þar sem við fengum að bruna uppá jökulinn á einhverju sem kallast áttu snjósleðar. Þeir voru nú [...]
Óflokkað
6 February 2008 | 0 Comments
Ferjaði cruiser norður á föstudaginn sem Elvar var að kaupa sér. Fljótlega var það orðið að cruiser og kerru í eftirdragi. Snjókomuna og frostið vantaði ekki á leiðinni svo sumardekk undir bæði bíl og kerru gerðu þetta ansi hægfara ferð. Auðvitað þó þess virði enda blótin alltaf meiriháttar.
Mætti annars norður með sett af glænýrri Macbook [...]