Skagafjörður á morgun!

Óflokkað 31 January 2008 | 0 Comments

Það verður brunað norður á morgun á Skodilakk sem er orðinn argasti jeppi núna eftir að hann var betur skóaður. Haukur og frú eru reyndar eitthvað að beila á okkur vegna óviðráðanlegra ástæðna svo ferðalangarnir verða þessir árlegu; Ég, Viddi, Jói og sennilega Bjössi frændi. Mér skilst að snjóalög séu í lágmarki svo hugmyndir um að velta sér uppúr snjónum og búa til snjó-engla verða að engu. Jói var meira að segja farinn að huga að betri-sleða-kaupum, en í staðin bilaði Trooper bara aftur svo hann er hausverkur Mola þessa stundina.

Geri ráð fyrir að sjá allt helsta fólkið þarna í firðinum, skálum í Íslensku brennivíni og borðum hákarl og hrútspunga saman!

Leave a Reply