Íslenska?

Óflokkað 28 January 2008 | 0 Comments

Er búinn að vera með tvær enskar bækur “á náttborðinu” núna í góðan tíma. Á töluvert styttri tíma er ég á góðri leið með þriðju íslensku bókina. Þykist ekki eiga neitt sérstaklega erfitt með lestur á ensku en er hinsvegar, eðlilega, miklu sneggri með íslenskar bækur. Fór þess vegna með því hugarfari í Eymundsson í kringlunni í gær og ætlaði að finna mér eitthvað íslenskt til að skella í mig. Fyrir valinu var þríleikurinn Forðist okkur eftir Hugleik Dagsson sem krefst kanski ekki mikils lesturs og rak ég svo augun í Sjálfstætt fólk eftir Halldór Laxness. Ég las Íslandsklukkuna einhverntímann í framhaldsskóla og jú jú, ég mundi alveg eftir að hafa þótt þetta erfiður lestur. Ég hélt einhvernveginn að það hafi aðalega verið afþví ég “þurfti” að lesa þetta í þessum blessaða Íslensku áfanga. Annað kom á daginn. Þessi bók hefur ekkert með íslensku að gera! :þ Sýndist reyndar að þegar leið á lesturinn að þetta var allt að koma. Maður þarf helst að klæða sig í lopapeysu og ullarsokka svo stemningin hjá manni detti aftur um 100 ár til að fljúga í gegnum þennan annars snilldar texta eftir meistara Laxness.

Talandi um lopapeysur og ullarsokka – það er þorrablót næstu helgi! Ég smala topp fólki norður svo það verður drukkið brennivín og borðaður hákarl!

Leave a Reply