Gleðilegt árið
Þetta ár fer ekkert sérstaklega vel af stað, blogglega séð. Ég er búinn að mikla það svo mikið fyrir mér að skrifa einhvern almennilegan áramótapistil eins og síðustu tvö ár þar sem ég kem með yfirlýsingar um hvað ég ætla að vera mikið duglegri við að hreyfa mig, lesa, læra og það allt. Sleppi því að telja þetta eitthvað upp núna – en lofa þessu öllu nú samt. Meira að segja að skrá mig í smá skóla til að rifja upp námstaktana og stefnt á að setjast að fullu á skólabekk einhvertíman bráðlega.
Sömuleiðis er ég nú þegar örugglega búinn að lesa meira á þessu ári en því síðast. Mæli með Hníf Abrahams eftir Óttar Norðfjörð, Harðskafi eftir Arnald Indriða var allt í lagi – held ég sé kominn með smá leið á Erlendi og co, og Stiklað á stóru um næstum allt eftir Bill Bryson er eitthvað sem ég er að tapa mér í þessa dagana. Ótrúlega skemmtileg bók um allt frá upphafi heimsins til skemmtilegra frásagna af sérvitrum vísindamönnum.
Annars er svo brjálað að gera í vinnunni að ég varla hef tíma til að sinna vinnunni – ef það meikar sens. Sömuleiðis hafa helgarnar verið ansi skemmtilegar, áramótapartýið í vesturberginu var hressandi og sömuleiðis síðasta helgi þar sem fólk gat skemmt sér um allt hús – gott ef ekki að einhver lagði undir sig eldhúsið






