Afbragðs helgi
Þessi helgi varð heldur betur eitthvað af viti
Sofnaði yfir góðri bók á föstudagskvöldinu og fyrir vikið var laugardagurinn var tekinn mjög snemma og komið töluverðu í verk í vinnunni. Horfði svo á fyrsta flokks handbolta hjá Bjaddna og skellti mér síðan í bæinn með Bjössa frænda sem ég reyndar týndi svo fljótlega. Sunnudagurinn var svo tekinn kröftuglega áður en þynkan fór að koma fram og skelltum við okkur í bláfjöllin með sleðann Jóa sem þarf sko heldur betur að taka á og strengir að myndast eftir því. Binni og Gísli voru síðan með sitthvorn sleðann og er ég ekki frá því að einhver skyndilegur sleðaáhugi hafi myndast.

