Málað og spilað

Óflokkað 10 December 2007 | 0 Comments

Bjössi frændi er búinn að vera á sófanum hjá mér síðustu tvær helgar og hefur íbúðin heldur betur tekið á sig aðra mynd. Fjöldi tómra bjórdósa líka alveg eftir því, enda eigum við það til að verða ansi þyrstir þegar við hittums ;) Á laugardaginn kíktum við svo í póker og actionary til Vals og Unu þar sem Diddi bauð meðan annars upp á Hrátt nautakjöt, sushi og ýmist lostæti.

Nú fer kofinn alveg að komast í það stand að maður getur farið að bjóða fólki í heimsókn og spurning hvort það verði eitthvað hresst áramótapartý þar sem ég reikna með að koma suður milli jóla og nýárs.

Leave a Reply