Kallinn í Hawaii skyrtunni

Óflokkað 11 December 2007 | 0 Comments

Friðrik Skúlason, púkinn á mbl blogginu, lýsir aðdáun sinni á forgansröðun ríkisstjórnarinnar í úthlutun fjármagns til hinna ýmsu málefna.

Til dæmis eru veittar 1.500.000 vegna “árs kartöflunnar”, en til samanburðar fær Daufblindrafélagið 1.200.000.

Það eru veittar 10.000.000 vegna niðurrifs frystihúss í Flatey, en það er sama upphæð og samanlagðar fjárveitingar til Félags áhugafólks um Downs-heilkenni, Barnaheilla, Félags einstæðra foreldra, Félags heyrnarlausra, Samhygðar og Samtaka áhugafólks um spilafíkn.

Púkinn vill að gefnu tilefni taka fram að hann hefur ekkert á móti selum, en honum finnst athyglivert að Selasetur Íslands og selaskoðunarstaður á Illugastöðum á Vatnsnesi fá samanlagt 20.000.000 – en það er fjórfalt meira heldur en veitt er til Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur.

Ágætt þetta.

Leave a Reply