Flickr og jól

Óflokkað 20 December 2007 | 0 Comments

Ég stofnaði mér Flickr aðgang þar sem ég hendi inn myndum sem ég tek á símann. Vonandi fer ég líka að taka eitthvað á Canon’inn, en planið hjá okkur Elvari (sem var líka að stofna sér flickr aðgang) er að vera duglegir með vélarnar núna yfir jólin.

Bylgja sys mætti annars hingað suður í gær til að sækja mig, kíktum í smá jóla-geðveiki í kringlunani og er planið að kíkja á xmas í kvöld og bruna svo norður í sæluna á morgun.

Þessi jól leggjast ágætlega í mig, það verður tekið mikið af myndum, lesið vonandi einhver slatti og borðað svo að sjálfsögðu yfir sig. Þetta verða semsagt vonandi mjög venjuleg jól ;)

Leave a Reply