Kominn með lyklana!
Haldiði að ég hafi ekki bara fengið kofann afhentan á þriðjudaginn. Búinn að vera að nýta mér Binna frænda síðan stanslaust í að skutlast út um borgina eftir dóti í búið og komin örlítil mynd á þetta hjá mér þarna í Vesturberginu. Viddi fékk síðan lyklana afhenta í morgun svo nú fer hann að geta komið sér fyrir, sem er alveg mátulegt þar sem nú um helgina verður tekið fram penslana og ráðist í að mála kotið.






