iPhone í afmælisgjöf
Fékk einstaklega svala afmælisgjöf í gær. Eftir að hafa verið búinn að opna 7 stk af þessum ágætu símum fékk ég loksins að opna síma sem mér var síðan gefið. Að sjálfsögðu klikkaði það og síminn fór í algjöra steypu en með gúggli til helvítis og algjörri heppni tókst mér að bjarga honum.
Í gærkvöldi fiktaði ég endalaust og tróð allskonar tólum inná hann. Síminn er byggður upp á OS X stýrikerfinu og keyrir á unix svo að þegar búið er að opna þá eru þetta ótrúlega öflug tæki.
Byrjaði að sjálfsögðu að setja inn brálað þema svo þetta lúkki ágætlega í höndunum á manni.
VNC client til að geta tekið yfir bæði makka og windows vélar.
Terminal til að fikta í símanum, tengjast við makkann, finnsson.net þjóninn og aðrar unix vélar :þ
Þar sem þetta er unix, eins og freebsd þjónninn sem keyrir finnsson.net, þá varð ég að prófa að henda Apache vefþjóninum og PHP forritunarmálinu inná símann
Þessi slóð, http://iphone.finnsson.net/ virkar því þegar ég er heima með símann og með vefþjónustuna í gangi
Spurning að vísa og flytja finnsson.net síðuni einhvern daginn inná hann og sjá hvernig hann ræður við heila heimasíðu

