Airwaves, uppgjör!

Óflokkað 25 October 2007 | 0 Comments

Þessi Airwaves hátíð var meiriháttar. Þótt það kosti töluvert að vera á sötri í miðbænum frá miðvikudegi fram á sunnudagskvöld þá er ekkert mál að réttlæta það fyrir sjálfum sér með því að taka inn í reikninginn að þurfa bara að borga 8500 kall fyrir armband til að komast á tugi meiriháttar tónlistarviðburða út um alla borg. Í blöðunum var íslensku böndunum hrósað hvað mest og tek ég að mestu undir það, Pétur Ben, Mugison, Motion Boys og GusGus (ég veit, allt eins tónlist) áttu algjörlega hátíðina fyrir mér. Og ekki skemmdi það þegar Mugison datt inn á sviðið á Dr. Spock tónleikunum á laugardagskvöldinu. !!! (chk, chk, chk) tónleikarnir voru síðan algjört einsdæmi, gólfið á NASA gjörsamlega ærðist og stemningin var ólýsanleg. Myndbandið frá Hangover partý’inu í bláa-lóninu sýnir svipaða stemningu, örugglega svipað blauta og jafn illa lyktandi.

Í fyrra sagðist ég ætla að taka mér frí kringum airwaves sem og ég gerði á föstudeginum og veitti ekki af til að lifa þetta af. Á næsta ári verður þetta hluti af sumarfríinu og verður búið í miðbænum á meðan hátíðin stendur yfir.

Ég komst síðan að því að stóra systir Bjaddna er svalari en allt vinafólk mitt því hún fór á Airwaves. Og meira að segja nýr borgarstjóri Reykjavíkurborgar var djammandi á Motion Boys.

Bjáddni átti svo múv hátíðarinnar þegar hann flaug svo glæsilega á hausinn við mikinn fögnuð viðstaddra. Vill þakka honum fyrir góða skemmtun og Vidda sömuleiðis fyrir þessar tvær mínútur sem hann var á svæðinu, greyið :)

Ætla að enda þetta á jútúbi frá GusGus tónleikunum.

Leave a Reply