Airwaves, á þriðja degi

Óflokkað 19 October 2007 | 0 Comments

Við erum búnir að sækja bæinn stíft síðustu daga og séð helling af meirháttar böndum. Fyrsta kvöldið var á Nasa, þar séð meðal annars litlu stelpurnar í Smoosh sem kunnu þetta alveg þrátt fyrir ungan aldur. Lights on The Highway komu mér líka vel á óvart, flottar ballöður sem maður er alltaf meira og meira að fíla og gott ef ekki þá var Palli gamli á Eyralandi, eða tvíbróðir hans, gítarleikari í bandinu. Við Viddi gátum ekki annað en fylgst með Palla allt kvöldið.

Í gærkvöldi kíktum við á Lídó. Veit ekki hvort þetta er einhver veislusalur dulbúinn sem bar núna yfir airwaves en þetta er allavega risastór staður sem gæti alveg átt framtíð fyrir sér sem skemtilegur klúbbur. Færeyingarnir í Boys In a Band áttu kvöldið, meiriháttar á sviði blessaðir og hvarf norskt metal band gjörsamlega á milli þeirra og Sprengjuhallarinnar sem voru ferskir á sviði og með ensku þýðingarnar á hreinu fyrir erlendu gestina.

Núna á næstu mínútum er stefnan tekin svo á bæinn aftur, eitthvað af off-venue viðburðum sem ég mæli með að fólk kíki á bæði í dag og á morgun. Frítt á þá alla og örugglega einhver bönd við allra hæfi. Í kvöld er stefnt meðal annars sett á Samma og Big Bandið hans, Pétur Ben, GusGus og MotionBoys.

Leave a Reply