Jákvæð blogg
Eftir smá vafr í kvöld sé ég að 95% blogg færslna, á Mogga- og öðrum bloggum, er fólk að röfla. Kvarta eða einfaldlega væla yfir öllum sköpuðum hlut. Ég er að spá í að smíða einhverskonar blogg-gátt til að hægt sé að skoða blogg-færslur eftir því hvort þær séu jákvæðar eða neikvæðar, vinsælar eða óvinsælar og eitthvað í þá áttina.
Einhverstaðar las ég eitthvað sem bloggarar ættu að taka til sín, “The loudest noise in the world is the sound of people whining. Dont add to it.”

