Sérstök verslunarmannahelgi

Óflokkað 7 August 2007 | 0 Comments

Bjóst aldrei við að koma til með að hafa lyst á bjór svona stuttu eftir salou ferðina en á föstudaginn kíkti ég í mat til Vals og Unu þar sem þau skelltu saman æðislegri máltíð eins og alltaf þegar maður lítur til þeirra. Smá actionary syrpa var tekin og enduði ég niðri í bæ og hitti gamla kunningja á Glaumbar sem ég sötraði með frameftir nóttu.

Á laugardaginn var ég þunnur og rifjaðist upp fyrir mér hvað ég hafði litla lyst á áfengi.

Sunnudagsmorguninn vaknaði ég kl. 5 og þar sem það var svo afskaplega gott veður, tók ég uppá því að labba kópavoginn þverann, þ.e. úr vestur kópavoginum þar sem ég bý og alla leið í austurkópavoginn til Vals til að sækja bíldrusluna. Miðað við strengina sem ég er enn með í löppunum, ber ég þess aldrei bætur.

Sunnu- og mánu-dagana lagði ég undir vinnu enda nóg að gera á þeim bænum þar sem nánast allt fyrirtækið er í sumarfríi og auk þess stórt verkefni í gangi sem ég hef legið yfir síðustu mánuði og sér lítið fyrir endann á.

Í morgun fór ég svo og skoðaði lítið kot í gettóinu svo vonandi fer eitthvað að gerast í húsnæðismálum hjá mér.

Leave a Reply