Menningarnótt
Ég gerði mjög heiðarlega tilraun til að halda mér sem mest edrú þessa menningarnóttina. Rölti af stað í bæinn með einn bjór og myndavélina og ætlaði að taka myndir allt kvöldið. Svo hitti ég Hauk.
Kíktum í partý á Háteigsveginn, myndavélin skilin eftir þar og smakkað nokkra bjóra. Svo var rölt í bæinn og skemmt sér framundir morgun. Smakkaði meiriháttar grillað hrefnukjöt á furðulega staðsettum bar sem ég rambaði einhvernvegin á og þvældist annars milli pöbbanna. Endaði þetta á klassísku Gauk/Glaumbar ráfi þar sem m.a. Á Móti sól hélt uppi hörku fjöri.
Núna rétt í þessu var ég svo að frétta að ég hafi verið á gestalista inná GusGus tónleikana sem mig dauðlangaði að sjá. Djöfullinn hafi það!
Svona over all þá var þetta nokkuð róleg helgi hjá mér, unnið mikið, sullað smá .. svo ég er bara nokkuð sáttur við hana. Það var smellt nokkrum myndum af liðinu á Háteigs – svo þær ramba sjálfsagt inn á netið þegar ég næ í vélina.






