Mac Mac Mac
Eins og mörg af ykkur vita skipti ég yfir í apple fyrir nokkru síðan og fékk mér meiriháttar Macbook Pro vél sem ég er enn í skýjunum með. Svo núna kem ég til með að blogga annað slagið til þessara örfáu makka notenda sem kíkja hérna inn. Öðrum er að sjálfsögðu velkomið að lesa líka
Sum ykkar vita líka að ég nota gmail og sendi allan vinnu og einkapóst gegnum það ágæta pósthólf. Til að njóta hvoru tveggja í ræmur, OS X stýrikerfisins á makkanum og gmail pósthólfsins hefur verið smíðað tólið Mailplane.
Þetta er í beta prófunum núna svo það þarf invite til að komast í þetta ágæta forrit. I’ve got some – svo endilega hóið makka-notendur ef þið hafið áhuga
Annað mál; makkinn minn er ferðavél. Rafhlaðan í gömlu HP vélinni minni eyðilagðist þar sem ég er alltaf með vélarnar tengdar í rafmagn hérna í vinnunni, þ.e. ég man svo sjaldan eftir að taka þær úr sambandi og láta vinna á rafhlöðunni. Ég gerði smá leit að forriti sem gerir þetta en fann bara tól sem eiga að minna mann á að hlaða, ekki að hætta að hlaða. Svo ég fór að smíða og með smá AppleScripti, mínu fyrsta AppleScripti, athugar vélin hjá mér á 10mín fresti hvort hún sé orðin full hlaðin og kemur með skilaboð til mín um að nú væri sniðugt að kippa henni úr sambandi. Sneddí? :þ






