Kominn heim já
Ætla nú ekki að fara að renna yfir ferðasöguna hérna, vona að einhver taki sig til á Salou síðunni. Annars já, þá komum við heim eftir langan dag sem endaði á laugardagsmorguninn um kl. 9 í rúminu mínu í kópavoginum. Sáttur við ferðina í flesta staði – kanski helst fyrir utan ónýtt bak eftir rúmið sem ég svaf í. Síðan ég kom heim hef ég skipst síðan á að vinna og sofa – en það er akkúrat dagskrá næstu daga/vikna.
Veit ekki alveg hver dagskrá verslunarmannahelgarinnar verður en ég efast um það verði útihátíð eða nokkuð tengt áfengisneyslu enda búinn að vera duglegur í þeim málum á spáni
Annars var ég að lesa snilldar frétt rétt í þessu um að Kevin Smith komi til með að skrifa og leikstýra fyrsta þættinum af Heroes: Origins sem er spin-off sería af kostulegu Heroes þáttunum sem flestir elska.






