Fyrir og eftir viku

Óflokkað 6 July 2007 | 0 Comments

Á föstudeginum fyrir viku síðan ákváðum við Viddi að taka því rólega, rölta niður í bæ og smella af nokkrum myndum í sumarblíðunni. Eftir símtal frá Val, sem einmitt var í bæjarrölts-hugleiðingum með Friðgeir, röltum við af stað niður laugarveginn með bjór í hönd og stefndum á eitthvert veitingarhús borgarinnar.

Blíða í borginni

Eins og svo oft áður, þegar mönnum langar í virkilega góðan mat, enduðum við á Tapas þar sem við átum yfir okkur af sniglum, humri, kjúkling, dádýri og ýmsu öðru lostæti.

Valur og Viddi yfir lostætinu

Drukknar voru rauðvínsflöskur með matnum og kaffi og koníak eftir matinn. Þetta varð auðvitað áskrift á enn meiri bjór í bænum, glaumbar og hressó nánar tiltekið, og miðað við síðustu myndina á myndavélinni (af myndarlegu útsýni) endaði þetta í leigubílaröðinni kl. 04:01

Og getið nú ;)

Eftir akkúrat viku er það svo sólarströndin. Fyrir vikið óska ég þess einna heitast að það rigni alla næstu viku þar sem ég kem til með að sitja sveittur fyrir framan skjáinn svo ég nái að klára verkefni í vinnunni áður en flogið verður út.

Á morgun er það hinsvegar stóri dagurinn Hauks og Sæunnar.

Leave a Reply