Smá myndvinnsla

Óflokkað 2 June 2007 | 0 Comments

Tók mig aðeins til og vann myndirnar sem ég smellti af Binna og Hafdísi á hjólunum í vikunni. Komst að því að það er hausverkur að fá makkann til að skila jpeg myndum rétt fyrir vafrana miðað við hvernig maður vinnur þær í Adobe tólunum. Þetta er prófíla-vesen sem vafrar eru ekki að skilja og ég nenni ekki að pæla í lengur því í ofanálag er þessi acer skjár hérna heima ekkert að hjálpa mér við að fá prófílana til að skila sér rétt. Myndirnar eru þessvegna ekkert eðlilegar nema þið skoðið þær á makka og í Safari vafranum því það virðist vera eini vafrinn sem les prófíl jpeg mynda og birtir þær í samræmi við hann. Ef þið hin (ómakkavæddu) viljið sjá myndirnar eins og þær eiga að vera verðið þið annaðhvort að bíða þar til ég leysi þetta eða getið bara kíkt í heimsókn til mín og fengið að sjá ;)

Smellið á myndina til sjá rest.

Leave a Reply