Rjómablíða
Frá því ég kom suður eftir steggja-trippið er ég búinn að vera kvefaður og handónýtur svo að í gær ákvað ég að taka daginn rólega og var heima við. Það væri svo sem ekki frásögufærandi nema hvað ég settist í smástund út á svalir í sólina með góða bók og las. Það væri heldur ekki svo frásögufærandi nema hvað mér tókst að brenna svolítið í sólinni.
Svona á maður að tækla veikindadagana






