Netlaus heila helgi
Þar sem reikningar fyrir net-áskriftinni minni eru sendir norður í land og fyrir það hvað ég kíki afskaplega sjaldan í heimabankann þá á ég það til að gleyma að borga þá. Síðast borgaði ég þegar það var búið að loka á það hjá mér og aftur gerðist það núna fyrir helgi.
Það var semsagt lokað hjá mér á föstudagskvöldið svo ég var netlaus alla helvede helgina því ég auðvitað er allt lokað hjá svona fyrirtækjum yfir helgar. Þetta var eins og að vera sparkað lengst aftur fyrir aldamót.. kunni afskaplega ílla við þetta. Það var einhver ónota tilfinning allann tímann sem ég var heima – þetta var eitthvað svo ónáttúrulegt.






