Jónsmessa / Steggjun

Óflokkað 25 June 2007 | 0 Comments

Ég gat lítið leyft mér að blogga um dagskrá Jónsmessunnar þar sem ferðin á hana var steggjunin okkar á honum Hauk. Þrátt fyrir að hafa bara mætt norður á laugardeginum var þetta meiriháttar fjör enda tókst mér núna að fylla rútu af borgarbörnum og draga í sveitina.

Þetta byrjaði 9 um morguninn þar sem hópurinn hittist í bænum og brunuðum við inn í Hafnafjörð að sækja stegginn. Frúin hans hafði lánað okkur lykil svo við gátum vaðið inn til hans með látum og sturtað í hann fyrsta bjórnum. Yfir daginn var svo farið reglulega illa með kappann, klæddur í Borat skýlu og sendur gegnum bílaþvottastöð, látinn syngja fyrir gesti staðarskála, sendur í fjós og svo á hestbak. Hópurinn endaði svo á lóðinni heima fyrir norðan þar sem atvinnugrill, smíðað af norlenska tröllinu Elvari, með heilum kindaskrokk beið okkar. Um kvöldið var svo hópast á ball með Geirmundi Valtýrs en Haukur og Ásgeir misskildu þetta eitthvað, héldu að þeir væru á Scooter tónleikum því helminginn af ballinu voru þeir berir að ofan með neonljós dansandi eins og brjálæðingar.

Sunnudagurinn lagðist mis vel í menn, hópurinn búinn að vera með bjór eða áfengi í hönd í 24 tíma daginn áður, svo flestir opnuðu sér bara aftur bjór og spiluðu fótbolta við lókal fótboltahetjurnar á meðan bílstjórinn okkar, sem borinn var heim undir morgun, jafnaði sig og náði upp orku til að koma okkur af suður aftur. Rútan var svo með einhvern móral á heimleiðinni, gekk stundum ansi furðulega svo spennan á leið upp göngin var yfirþyrmandi.

Haugur var síðan af myndavélum svo eitthvað af þeim ættu að rata á netið í vikunni. Ég smelli inn tenglum á albúmin hérna á síðuna.

Leave a Reply