Funduð þið hvað bærinn angar?

Óflokkað 1 June 2007 | 0 Comments

Þessa fyrirsögn hugsaði ég mér í gær að skrifa í dag í tilefni reykingarbannsins og segja hvað ég er ánægður með það sem fórnarlamb óbeinna reykinga og óánægður með það sem einstaklingur. Ég nenni hinsvegar ekkert að skrifa um það núna og finn heldur engann helvítis angann þar sem einn vinnufélaginn mætti veikur á þriðjudaginn og þar sem ég hef einmitt lítið verið duglegur í hreyfingunni greip ég hálsbólgu og kvef hjá honum.

Þessu er ég ekkert að nenna og ef gula fíflið lætur sjá sig í dag, þá…. geri ég ekki rassgat og öfunda þá sem úti eru.

Leave a Reply