Veislur og norðurlandið

Óflokkað 30 May 2007 | 0 Comments

Fyrir helgi skellti ég mér á magnaða tónleika í tónleikaröðinni “Take me down to Reykjavík City”. Hljómsveitirnar Hagalín, Sprengjuhöllin, FM Belfast og Motion Boys spiluðu í Iðnó og verð ég nú bara að undirstrika það að við Íslendingar erum forrík af meiriháttar tónlistarfólki sem kann að skemmta sér og öðrum.

Seinnipart laugardagseins fór ég svo í brúðkaup hjá Ástu frænku og Gumma sem haldið var í fríkirkjunni í Hafnafirði. Myndalegasta brúðkaup og þræl skemmtileg veisla á eftir sem stóð fram á nótt. Ég reyndar rétt svo gat sötrað á hálfu hvítvínsglasi þar sem ég tók að mér að koma foreldrum mínum heim um nóttina, alla leið norður í skagafjörð þar sem útskriftarveislan Hjörvars var á sunnudaginn. Tók eitthvað af myndum sem ég á eftir að fara yfir og hendi sjálfsagt á netið fljótlega.

Annars hef ég sjaldan öfundað nokkurn mann jafn mikið og þegar ég lagði af stað suður á mánudagskvöldið. Ég hringdi í Elvar sem var staddur einhverstaðar úti á firðinum á togaranum sínum, með stöng og dorgaði í svoleiðis svarta logni. Sjórinn var spegilsléttur fjörðurinn eldrauður í kvöldsólinni. Ég legg hér með fram formlega beiðni um að fá að kíkja með í túr einhvern daginn fyrir jónsmessuhelgina, en planið er að reyna að fá frí einhverja daga fyrir hana.

Leave a Reply