Kosningar!
Aldrei í lífinu bjóst ég við að taka jafn svakalega mikið þátt í kosningum og ég hef verið að gera. Þar sem ég hef haft fréttir, umræður, spár og tölur fyrir framan mig daglega síðustu 2 mánuði hafa skoðanir mínar á hinum og þessum málefnum myndast, herpst og breyst. Allt til hins betra vona ég.
Kosningavefur vísis kemur til með að umturnast í kvöld, færast úr kannana-uppflettivef yfir í lifandstöðu-vef sem sýnir nýjustu tölur um leið og þær detta inn. Kosningasjónvarp stöðvar 2 verður í beinni á honum svo ef þú verður við tölvu í kvöld mæli ég með að þú hafir hann uppi, hafir þú á annaðborð áhuga á kosningunum.
Sjálfur þarf ég að sitja vaktina og lífga vefþjóninn sem keyrir vefinn við ef hann tekur uppá því að ráða ekki við álagið. Ég ætla nú samt að sitja með bjór við hönd enda ekki annað hægt á sjálfri kosninganótt.
Eitthvað hefur svo sést til nokkurra Skagfirðinga hérna í bænum svo kvöldið gæti endað með ósköpum.






