Euro-röfl í terabætum
Hversu mörg terabæt af bloggi ætli íslenskir vefþjónar endi uppi með þegar reiðin rennur loks af landanum? Allavega vantar ekki bloggin sem hengd hafa verið við fréttirnar á mbl og skoðanirnar hrynja inn í tugum kílóbæta hjá þeim sem kalla Eirík tapsáran.
Ég rétt fylgdist með þegar hann flutti lagið og gaf mér svo ekki meiri tíma í að fylgjast með þessu. Umferðin hérna eftir kringlumýrabrautinni framhjá vinnunni hefur aldrei verið jafn lítil eftir kvöldmat og var bara hálf draugalegt um að litast.






