Apple, WordPress og … Salou?

Óflokkað 22 May 2007 | 0 Comments

Vill byrja á að óska Balla til hamingju með að vera kominn yfir í Apple heiminn. Kappinn fékk sér iMac í dag og situr mjög sennilega fastur yfir honum næstu daga. Ég veit að Bjaddni er á leiðinni yfir og Viddi hljómar heitur fyrir einni makkabók.

Ég er kominn með smá leið á blogg kerfinu mínu sem þessi síða er sett upp á. Ég nenni aldrei að klára það almennilega og já.. bara kominn með leið á því. Er því búinn að vera að gera nokkrar tilraunir með að spóla færslunum yfir í WordPress. Það svínvirkar fyrir utan að skoðanirnar fjúka útí veður og vind svo ég þarf að grúska aðeins meira í því. Örugglega ekkert mál. Er síðan alveg eins að spá í að stofna mér flickr aðgang því ég er orðinn svo latur hvort sem er að taka það mikið magn af myndum í einu að myndasíðan er að verða hálf úrelt – og að ég tali nú ekki um leiðann á útlitinu hérna á síðunni hjá mér þannig að þegar tími gefst gæti síðan tekið einhverjum stakkaskiptum.

Annars styttist alltaf í Salou .. mikið rosalega verður gott að flatmaga á sundlaugarbakkanum eftir tæpa tvo mánuði. Fram að því er annars nóg að gera. Þar á meðal eitt stk. jónsmessuhátíð en ég veit að þá verður fjör.

Leave a Reply