ái .. íslenska landhelgisgæslan

Óflokkað 16 May 2007 | 0 Comments

Sáuð þið viðtalið í fréttunum á stöð 2 við Paul Whatshisname, skipstjóra Sea Shepherd? Þar hló hann létt að því þegar fréttamaðurinn spurði hvort hann hefði engar áhyggjur af íslensku landhelgisgæslunni þar sem honum hafi nú verið meinaður aðgangur að landinu eftir að hann gerði allt vitlaust hérna fyrir slatta af árum. Þótt hann hafi nú verið að bera þetta saman við að hann sé nýlega kominn úr bústri við sovéska skipaflotann þá fanst mér þetta svolítið stórt skot á gæslunnar svona rétt áður en þeir mæta á svæðið. Ég vona svo bara innilega að gæslan verði með fallbyssurnar á hlaðnar þegar hann kemur inn fyrir lögsöguna. Ekki það að ég sé hlynntur fiskiríinu á hvölunum heldur þoli ég nú bara ekki svona rótæka mótmælendur.

Leave a Reply