Litla systir búin að játa Guði

Þá er páskahelgin afstaðin og “fríið” sömuleiðis. Ég skellti mér norður á miðvikudagskvöldið og við tók þátttaka í undirbúning fermingarinnar Sjafnar. Ég verð nú samt að viðurkenna að ég var frekar spenntari fyrir að kíkja eitthvað með frændum mínum á hjóla- og sleða-kostina á norðurlandinu en þrátt fyrir þessa fjóra daga gafst enginn tími í það. Uppstilling á hljómsveitinni Herramenn frá 94 kom þó saman á föstudagskvöldið og spilaði á Mælifelli. Maður hafði heyrt margar sögur af þessu ágæta bandi svo það varð að kíkja yfir á krók með Binna og stóðu Herramenn heldur betur fyrir sínu. Fermingin á sunnudeginum var svo hin glæsilegasta, góður matur og hressir ættingjar upp til hópa. Smellti eitthvað af myndum og reyni ég að græja þær inn á netið við tækifæri.
Annars er dagskrá þessa mánaðar stútfull af vinnu, hreyfingu og námskeiði fyrir hjólaprófið. Ætla að koma mér í það og reyna að snyrta ökuskírteinið eitthvað fyrst Elvar þarf alltaf að drulla yfir mann útaf tómlegu skírteini.






