Afbragðs helgi

Óflokkað 17 April 2007 | 0 Comments

Nokkrir norðlendingar mættu í bæinn um helgina svo það var ávísun á skrautlega helgi. Föstudagskvöldið og laugardaginn var ég reyndar að vinna um laugardagskvöldið var smalað fólki heim til Jóa í massa gítarpartý. Gríðarleg stemning fram á nótt sem endaði svo á að við Viddi skelltum okkur í bæinn. Það endaði reyndar svo með okkur hlæjandi útá götu og mér alblóðugum eftir að Viddi í slysni/gríni skallaði mig svo nú er ég massa kúl með lítinn skurð á annari augabrúninni.

Hver þarf óvini þegar hann á vini eins og Vidda? :D

Annars tók ég myndavélina með og smellti af örfáum myndum. Það fáar að ég efast um að ég troði því eitthvað á netið. Tók upp helling af myndböndum hinsvegar, af drukknu syngjandi fólki svo eitthvað af þeim endar á netinu hugsa ég ;)

Leave a Reply