Sýning frá upphafi til enda
Hvað er að þessum fjölmiðlum hérna á klakanum? Vísir.is og Mbl.is semsagt. Afþví þetta eru vef- en ekki útvarps- eða sjónvarps-miðill leyfa þeir sér að dæla í okkur ógeðslegri copy/paste fréttamennsku um þetta dapra líf í Hollywood.
Varla hefur liðið sú vika síðan um áramót án þess að Britney Spears hafi troðið sér á forsíðuna á þessum fréttavefum.
Og úr því þetta er forsíðuvænt efni fréttavefa – skulum við ræða þetta aðeins. Þetta snapp hjá henni, að detta í það og gera allt vitlaust, er bara PR stunt dauðans. Frá upphafi til enda. Núna koma fréttir um að hún komi sterkari sem aldrei fyrr út úr þessari meðferð. Hún er auðvitað búin að fá endalausa athygli með þessu fylleríi og nú meðferðinni – og hvað er betra svona rétt áður en hún gefur út plötu?
(Hehe.. það að ég las fréttina um að hún sé komin úr meðferð segir kanski allt sem segja þarf?)

