Innrásin í Írak

Óflokkað 13 March 2007 | 0 Comments

Og úr því að ég er byrjaður að ræða pólitík þá kristallast skoðun mín á stjórnarflokkunum á þessu landi okkar í færslu Guðmundar Steingrímssonar um stuðningsyfirlýsingu íslands við innrásina í Írak.

Þetta er samt ekki yfirlýsing mín um að ég vilji fá Steingrím J., verðandi netlögreglustjóra Íslands sem næsta forsætisráðherra. Um Ingibjörg Sólrún ætla ég ekki að segja neitt. Eins og meirihluti landsmanna treysti ég henni ekki fyrir nokkrum hlut.


Þessir (kanski óvæntu) póstar frá mér um pólitík koma til vegna þess hversu óánægðari ég verð með hverri umræðunni á fætur annarri sem sprettur upp í fjölmiðlum, allt frá náttúruspillingu til klámsráðstefna og að auki fyrir það að vegna vinnu við vefs sem ég er að smíða fyrir ákveðinn fjölmiðil hérna heima hef ég þurft að sökkva mér aðeins í þetta alltsaman.

En örvæntið eigi; mér finnst öll umræða um pólitík enn hund leiðinleg, því hún oftar en ekki gengur í eintóma hringi, svo ég vona að ég sé ekkert að fara að taka uppá því að skrifa reglulega um þennan málaflokk.

Tilkynningar um hvenær ég fer á fyllerí og hversu mikið er að gera í vinnunni hjá mér verða áfram lagt megináherslu á hérna.

Leave a Reply