Hvað er að þessu alþingi?

Óflokkað 13 March 2007 | 0 Comments

Vestfirðingar væla eitthvað aðeins í sjónvarpi og það spratt upp vestfjarðarnefnd á alþingi um leið?! Gott mál fyrir vestfirðina en hvað með til dæmis Skagafjörðinn? Skagaströnd og Blönduós?

Þetta er nú reyndar bara samansafnaður pirringur hjá einhverjum sem hefur ekkert vit á þessu en þykist auðvitað vita allt um þetta, svo takið ekki mikið mark á mér.

Einhver umræða kom upp um að virkja í Skagafirði og iðnvæða norðurhluta landsins. Að einhverjum Skagfirðing skuli detta það í hug að fara að virkja þar er svo fjarstætt í mínum huga að ég hef ekki látið mér detta það í hug að tak þátt í þeirri umræðu. Sá sem er hlynntur því er, að mínu mati, réttdræpur innan sýslumarkanna þar. (Ekki málefnalegt?) ;)

Af hverju er alþingi ekki með almennilega stefnu í byggðarmálum landsins alls þar sem meðal annars vestfirðirnir eru teknir fyrir og brotabroti af þeim aurum sem settir eru í þetta ál kjaftæði nýttir í frumkvöðlastarf úti á landi? Eða efla ferðaþjónustuna sem nokkuð myndarleg víðsvegar um landið. Það er búið að horfa svo mikið upp í þessa ál-sól að menn eru orðnir blindir.

Skagafjörðurinn hefur verið nokkuð duglegur í þessum málum. Sláturhúsið fyrir norðan er farið að nota rafræna tækni til að meta skrokkana, hljómar mjög “21. öldin” og hlýtur að auka nákvæmni mats á skrokkum í stað þess að láta mismunandi starfsmenn vera að meta þetta og því um leið verðmæti þeirra. Eitthvað er unnið úr fiskroði, meira að segja minnir mig að ég hafi heyrt um hulstur fyrir iPod og efni í Nike skó. Hvort þetta borgi sig er síðan allt önnur spurning en þarna er augljóslega á ferðinni fólk sem þorir að reyna þetta og á ríkið að styðja svona starfs miklu frekar en að stífla allar sprænur á landinu.

Ferðaþjónustan í Skagafirði hefur svo alltaf verið nokkuð myndarleg en ég veit auðvitað ekkert hvernig það er í samanburði við aðra staði á landinu. Iceland Express fór að vera með millilandaflug frá Akureyri og hljóta ferðaskrifstofurnar sem bjóða fólki til landsins að nýta sér það. Þessa hluti alla á að hugsa um og samgöngumál milli ísafjarðar frá norðurlandinu styrkir ferðaiðnaðinn þar örugglega svo það á ekki að einblína svona staðbundið á þetta, þó það kanski leysi vandamálið í smá tíma þar til þú ert kominn í strand annarstaðar á landinu.

Guðni ætlar að henda 16 milljörðum í íslensku rolluna næstu 10 árin ef ég man rétt. Klöppuðu sauðfjárbændur eitthvað óvenju mikið á bakið á Guðna og hefðu menn í öðrum hlutum landbúnaðargeirans og menn í ferðaþjónustunni ekki átt að reyna að gera það sama. Enn og aftur finnst mér vera horft of stíft í eina áttina í staðin fyrir að horfa heildstætt yfir málin úti á landi.

En hvað veit ég svosem um þetta? Ég hef ekki gráðu í nokkru tengdu fjármálum og meðferð peninga í af þessari stærðargráðu. Ég rétt get haldið utanum mín mánaðarlaun og hef stundum mis gáfulegar hugmyndir um það í hvað ég á að eyða þeim. Ég hef aldrei farið í rafting í skagafirði, ég hef aldrei séð þessa staði þarna fyrir austan sem búið er að sökkva og ég rétt svo veit hvar þjórsárver eru. – En mikið rosalega væri ég til að þessir staðir verði ekki annaðhvort risastór uppistöðulón eða leðjudalir þegar ég gef mér tíma til að ferðast þangað.

Leave a Reply