Á þetta ekki að heita vefdagbók?

Óflokkað 25 March 2007 | 0 Comments

Hef verið afskaplega lélegur að nota þetta sem einhverskonar dagbók á netinu – sem orðið blog(g) (web log) er hnoðað saman úr. (90% ykkar vissu þetta sennilega).

Síðastliðna vika er búin að vera brjáluð í vinnunni. Ég held ég hafi einusinni verið kominn heim fyrir miðnætti, mætt svo aftur eldsnemma daginn eftir og já, bara búinn að taka magnaða törn. Miðað við “play count” listann í iTunes hef ég verið duglegur að spila nokkur lög af nýja gus gus disknum þótt reyndar Muse cover á House of the Rising sun sprengir allan skala – enda vangefið cover sem ég ætla að láta fljóta með þessari færslu.

Helgin er svo búin að vera löng. Föstudagskvöldið fór í vinnu fram á nótt og laugardaginn var tekið mjög snemma og flogið á Akureyri þar sem fjölskyldan var stödd og smellt var af myndum af okkur systkinunum í tilefni að Sjöfn fermist núna um páskana. Ég þvældist aðeins um Akureyri með þeim og flaug svo suður aftur seinnipartinn.

Í flugvélinni, við brottför á leiðinni heim, tók ég eftir kappa sem signdi sig þegar vélin fór að hreyfast. Ekki það að ég ætli að setja eitthvað útá trú mannsins, heldur verð ég að viðurkenna að þá – þegar ég sá hann gera krossmarkið – skreið einhver óþarfa hugsun upp um þennan blessaða farkost sem flugvélar annars eru.

Ég var lentur uppúr kl. 18 í gærkvöldi, skaust heim og lagði mig í nokkra tíma og síðan eftir það er ég búinn að sitja við tölvuna hérna uppi í vinnu með nóg af orkudrykkjum og kaffi.

Ástæðan fyrir allri þessari vinnu hefur verið nýr vefhluti á vísir.is þar sem pólitíkusar geta hrært í gömlum tölum og skoðanakönnunum og séð alþingi raðast upp eftir eigin forsendum. Þennan vef stóð til að opna í Silfri Egils núna í hádeginu en þar sem einhverjum tölum á enn eftir að dæla í grunninn veit ég ekki hvort af því verði. Hann verður allavegana opnaður á næstu dögum svo fylgist með :þ

En tékkið á viðhenginu!

Leave a Reply