3G

Óflokkað 13 March 2007 | 0 Comments

Djöfull verður gaman að sjá hvað þetta nýja farsímafyrirtæki, Nova, á eftir að gera fyrir markaðinn hérna heima. Verst hvað edge tæknin sem vodafone er aðalega að nota er ekki samkeppnishæf við þetta svo ég vona nú bara að þeir séu byrjaðir að skoða 3G af einhverri alvöru líka. Trúi nú reyndar ekki öðru.

Mér finnst nú líka hálf dónalegt hvað vodafone getur rukkað fyrir hvert MB í niðurhali gegnum gprs tengingarnar (mms og vafr í símanum) á meðan þeir geta boðið uppá fréttatímana og allt efnið hjá 365 fyrir 1100 kall á mánuði og ótakmarkað niðurhal af því. En jú þetta er orðið eina leiðin fyrir vodafone og símann til snúa uppá hendurnar á kúnnanum því nú eru allir farnir að nota ip síma og löngu hættir að borga skrefagjöld.

En bíðið bara; þegar þetta verður komið á viðráðanlegt verð og það borgar sig að einhverju leyti, þá verður miðjan.net öll aðgengileg í gsm símum. Öll myndböndin þarna eru þegar til í formati sem síminn skilur ef hann skilur ekki flash þegar þ.e.a.s. svo þú getur skoðað fyndnar klippur af miðjunni hvar og hvenar sem er! :þ

Leave a Reply