Síðustu þrír dagar

Óflokkað 21 February 2007 | 0 Comments

Bolludagurinn fór algjörlega framhjá mér og vissi ég ekki að það væri bolludagur fyrr en ég horfði á kvöldfréttirnar. En þá gat ég þó undirbúið mig fyrir sprengidaginn í gær, gert ferð í nóatún og sótt mér saltkjöt og baunir sem ég borðaði með bestu lyst. Það besta við þetta alltsaman er þó það að vinnan flutti fyrir áramót á fjórðu hæð í byggingu í Sóltúninu. Kaupþing er á flestum öðrum hæðum hérna svo ef einhver krakka-gríslingur lét sjá sig hérna í sóltúninu græddi hann í mesta lagi eitthvað á jarðhæðinni og enginn var það þrjóskur að prófa að kíkja alveg upp á þá fjórðu. Kallið þetta mannvonsku eða hvað sem er en síðustu ár fæ ég hroll hugsi ég til þessa dags enda fátt sem rífur mann eins kröftuglega upp frá forritun og gargandi fuglabjarg inná miðju gólfi í vinnunni tuttugu sinnum á dag. Hefði hvort sem er ekki mátt vera að því í dag því það er sko nóg að gera í vinnunni.

Leave a Reply