Finnsson.net á leiðinni niður
Ég veit ekki alveg hvenar ég þykist ætla að hafa tíma til þess en ég reikna með að taka þjóninn sem hýsir þessa og nokkrar aðrar síður niður einhvertíman á næstunni. Annar diskurinn í honum er farinn að syngja sitt síðasta og þarf ég líka að taka til á honum og koma mér upp almennilegri hýsingu undir myndirnar mínar.
Annars er fátt að gerast, helgin var afskaplega rólega fyrir utan smá átök í ræktinni áðan. Horfði til dæmis á Al Gore myndina, An Inconvenient Truth. Mæli með því, ef þið horfið á hana, að þið hafið öll ljós slökkt í húsinu á meðan svo þið fáið ekki móral eftir myndina. Kappinn sýnir nokkuð skýrt að mínu mati hvaða áhrif manneskjan er að hafa á jörðina.






