Ég og OS X
Ég veit ekki hvort það er þrjóskan í mér eða bara hvort þetta hafi alltaf verið örlög mín, en þessi flutningur minn milli þessara tveggja stýrikerfa hefur gengið óskaplega vel. Helgin fór í að venja sig á nýtt lyklaborð og venja sig inn á hinar og þessar flýtileiðir og er það bara allt að koma. Í dag var stúderað ip-síma client til að tengjast inn á símkerfið hérna í vinnunni. Með smá af google og svo örlítið af fikti leystist það. Allt sync farið að virka, síminn við contact listann og er alveg ótrúlegt hvað þetta bara virkar. Ekkert; “Apply, apply.. helvítis… error. Device not found. Error.” Sama á við um allt gegnum netið. Mount við hin og þessi drif og svæði í vinnunni.. svínvirkar!
Svo hefur borðið mitt í vinnunni aldrei verið svona snyrtilegt. Jafn margar snúrur reyndar, en þær einhvernvegin komu sér fyrir mikið betur en við pésann.






