Ég langar í MacBook

Óflokkað 14 February 2007 | 0 Comments

Mig hefur alltaf langað í makka. Athugið, tvö ká. Aldrei farið neitt leynt með þá aðdáun en sífellt smeykur við að skipta og falið mig á bakvið að geta ekki notað einhver forrit sem ég er orðinn vanur á pésanum. Nú, einsog allir vita, eru þeir orðnir “intel inside” og með tólum og tækjum má keyra windows hugbúnað án þess að það sé mikið vesen. Í þokkabót eru mörg af þeim tólum sem maður notar farin að færast yfir í vefumhverfið, sbr. gmail fyrir allan minn tölvupóst, svo ástæðurnar til að hanga í pésanum eru sífellt að minka. Verðmiðinn á vélunum er í þokkabót orðinn viðráðanlegri svo maður hefur ekkert til að fela sig á bakvið lengur.

Kiddi Opex hefur svo verið duglegur að lýsa yfir aðdáun sinni á sínum eigin vélum, og þrátt fyrir að hafa lent í vandræðum með gallaðar vélar er hann ólmur að ég láti vaða.

Síðustu daga hef ég svo verið að gera athuganir á þeim hugbúnaði sem ég nota dag frá degi og finn bara enga ástæðu til að láta ekki vaða í myndalegan lappa frá Apple nema kanski það að ég hef enganvegin efni á svona græju. Það hefur reyndar aldrei stoppað mig í fjárfestingum fram að þessu, svo kanski maður sjái ljósið á næstunni.

Leave a Reply