Smekklaus þjóð?
Ég var á þvæling í hádeginu, sem væri svosem ekki frásögu færandi, nema fyrir það að ég hélt áfram tilraunum mínum á að hlusta á X-ið 977. Ég er kominn að niðurstöðu. Þssi stöð er held ég staðsett of nálagt FM 957, hvort sem það er til húsa eða á FM skalanum. Það er sama lyktin af tónlistinni á X-inu, og er af tónlistinni á FM.
Nú er ég forvitinn og væri til í að vita hvort nýjir eigendur Xfm og KissFm sjái ekki möguleika á að reka þessar stöðvar vegna lélegrar afkomu hjá fyrri eigendum og hvort þeir kunni einfaldlega ekki að reka útvörp, eða hvort Íslendingar séu svona vita-vonlausir hvað varðar að velja sér útvarpsstöðvar til að hlusta á?
Ég vill X-fm aftur, og það strax!






