Nýr hofsprent.is og eitt stjörnuljós
Þessi helgi fór nánast öll í vinnu þar sem megnið af tímanum fór í nýjan Hofsprent vef. Við tókum rúnt bæði föstudagskvöldið og á laugardeginum um borgina til að mynda skilti og merkingar og setið svo töluvert yfir því að koma efni inn á vefinn og tókst þetta alltsaman bærilega.
Þrettándanum fagnaði ég svo með nýja frænda mínum en Valur og Una eignuðust einmitt erfingja á gamlárskvöld. Stórsteik þar á bæ eins og venjulega og svo tapaði Valur sér í að skjóta upp flugeldunum sem áttu að fara upp á gamlárskvöld en ekkert færi gafst til. Ég fékk svo stjörnuljós í hendurnar og þegar ég hugsa til baka, þá er þetta það eina sem ég snerti yfir áramót/þrettánda sem tengist flugeldum á einhvern hátt. Og ég á að heita frændi þeirra í sætúninu á Hofsósi.






