Hversu súrt?
Er nú samt ánægður með árangurinn hjá “strákunum okkar”. Þeir meiga bera þennan titil hér eftir og ætla ég að nota hann óspart á þetta handboltalandslið okkar.
Hef ég nú aldrei verið neitt sérstaklega hrifinn af dönum og ekki bætti þetta úr skák og það sem á svo eftir að toppa þetta enn frekar er að ég á eftir að vinna með einum slíkum á morgun. Hvort hann lifi þann vinnudag af er óvíst enda vorum við nokkrir sem blótuðum þessari þjóð uppi í vinnu áðan.






