Áfram Ísland!
Ég ætla nú ekki einusinni að reyna að lýsa ánægju minni með leikinn í gær, þetta var meiriháttar. Það er líka svo ótrúlega gaman af Íslendingum, hvað stoltið sést ótrúlega í augunum á því útá götu.
“Merkilegt hvað Íslendingar eru alltaf lánlausir á þessum mótum. Miðað við höfðatölu erum við náttúrulega mögnuð. Verst hvað útlendingar taka lítið tillit til þess?” -sagði Chris Lund ljósmyndari eftir tapleikinn í fyrradag, og vill ég bara bæta við eftir stórsigurinn í gær að miðað við höfðatölu erum við náttúrulega best í heimi. (eins og margoft hefur komið fram).
Annars brunaði ég til Selfoss eldsnemma í morgun til að koma Ingvari Daða þangað. Kappinn var að kaupa sér bíl og klúðraði ég nú bara alveg að taka mynd af honum, þrátt fyrir að eiga nú nóg af myndavélum og þá símum sem hefðu getað leyst þær af.






