Það er mánudagur

Óflokkað 22 January 2007 | 0 Comments

Mánudagur hefur einhvernvegin aldrei verið byrjun vinnuvikunnar hjá mér. Annaðhvort gerist ekkert af viti fyrr en á þriðjudögum, eða þá að sunnudagskvöldin fara í að ég kíki í vinnuna og krota niður einhverjar áætlanir um hvernig vikan verður hjá mér. Í gær tók ég reyndar heljarinnar törn og vann miklu meira en ég ætlaði mér, fór seint að sofa og svaf ílla þar sem ég var kominn á of mikið skrið í verkefnum vikunnar. Held ég hafi vaknað allavega þrisvar yfir nóttina og í fjórða skiptið, 6:30 í morgun, drattaðist ég bara á fætur og skellti mér í sundið, en við Viddi höfum náð að stunda það stíft síðustu vikur og mánuði. Það eiginlega jafnast ekkert á við að byrja daginn á að slappa af í sjóðandi heitum pottinum eftir að hafa tekið ágætlega á því í lauginni.

Um helgina tókum við Viddi smá rúnt með myndavélarnar og náðum nokkrum skotum af norðurljósunum.

Nú er dagurinn svo farinn að lengjast aðeins, og er ég að fíla það, svo það fer alveg að koma að því að þið getið séð myndir teknar í birtu hjá mér. :þ

Þorrablót
Um næstu helgi er það svo mál málanna. Elvar kemur til með að detta í það!! Bjaddni asnaðist reyndar til að fæðast á þessum degi, 27. janúar, svo það verður partý hjá honum á Nasa í tilefni þess og því verður þetta ekki eins hresst borðhald og í fyrra. Það er bara ekki hægt að sleppa þorrablóti, fyrirgefðu Bjaddni minn, svo ég ætla að koma mér norður og mér skilst ég sé að ná að draga Jóa með mér og jafnvel snjósleðann hans líka. Enginn annar þarna úti sem er til í íslenskan mat, hákarl og brennivín?!

Leave a Reply